SKÓGARMAÐUR Á FLATEYRI.

Stunda garðyrkju af kappi hvern einasta dag og fæ ekki grænan eyri fyrir.  Geri þetta þó plantnanna vegna enda elska ég allt kvikt nema stundum menn.  Bjargaði ófáum flugum upp úr lauginni hér á staðnum og meira að segja skítaflugu eitt sinn en sú sat á hægðamola sem merktur var Hafberg.  Vona bæjarstjórinn sjái á mér aumur og leki einhverju til mín enda í fullu samræmi við stefnu bæjaryfirvalda að safna skuldum innan eðlilegra marka.

Doddi Koddi.


ER EKKI KOMINN TÍMI TIL ???

Hvað dvelur Frjálslyndaflokkinn?........Er ekki kominn tími til, að taka á sig rögg?   Það að velta vöngum yfir hégóma,  skemmtir skrattanum.   Stefna flokksins er skýr, og flekklaus.  Ekki sakna Jóns.  Heldur safna liði.

FRAMSÓKNARÓHÆFAN ENN Í GANGI!

Ömurleg framkoma borgarfulltrúa framsóknarflokksins varðandi óhæfuboð eigin manna í ráðhúsinu er frágangssök og dæmigert athæfi þess gamla Íslands sem við viljum losna við.   Út með manninn!

KODDINN.


ÚT MEÐ ARFANN!!!!

Endurnýjun sjálfstæðisflokks fyrir komandi kosningar virðist að vonum:  ENGIN.  Gömlu arfasáturnar allar í forgrunni,  sama fólkið og vanvirt hefur lýðræðið með vinnubrögðum sínum og stjórnsýslu, sniðgengið sjálfsögð frelsislögmál og sofið á verðinum gagnvart aðsteðjandi hættum sem augljósar voru.   Verði þetta kyndilberar flokksins á komandi kjörtímabili er klárt að höggvið verðuir í sama knérunn klíkusamfélags og misréttis.  ÚT MEÐ ARFANN!
 
Doddi Koddi.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband